09.07.13 - 21:30
Daníel Freyr Jónsson
Mauro Icardi genginn í raðir Inter (Staðfest)

Mauro Icardi er nýjasti liðsmaður Inter.

Mynd: Getty Images

Mauro Icardi er nýjasti liðsmaður Inter.

Mynd: Getty Images
Inter Milan hefur gengið frá kaupunum á framherjanum Mauro Icardi frá Sampdoria
Þessi tvítugi Argentímuaður vakti mikla athygli með Sampdoria í vetur, en hann skoraði 11 mörk á tímabilinu eftir að hafa komið frá Barcelona síðasta sumar. Áður hafði hann eytt hálfu sem lánsmaður hjá Sampdoria og lék þá tvo leiki.
Ítalskir fjölmiðlar hafa lengi haldið því fram að Icardi væri á leiðinni til Inter og hefur það nú verið staðfest af báðum liðum.
Ekki er vitað hve mikið Inter greiðir fyrir leikmanninn, né hve langan samning hann skrifaði undir.

Heimild: Heimasíða Inter