Fotbolti.net
09.07.13 - 18:00
Magnús Már Einarsson

Olof Mellberg í FC Kaupmannahöfn (Staðfest)

Olof Mellberg í FC Kaupmannahöfn (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sænski varnarmaðurinn Olof Mellberg hefur skrifað undir tveggja ára samning við FC Kaupmannahöfn.

Sölvi Geir Ottesen yfirgaf FC Kaupmannahöfn á dögunum og félagið hefur nú ákveðið að krækja í Mellberg.

Hann mun því meðal annars berjast við Ragnar Sigurðsson um sæti í vörn Kaupmannahafnar.
Hinn 35 ára gamli Mellberg spilaði síðast með spænska félaginu Villarreal.

Á ferli sínum hefur hann meðal annars leikið með Aston Villa, Juventus, Olympiakos og Racing Santander.

Heimild: Heimasíða FCK

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.