Fotbolti.net
09.07.14 - 17:30
Grímur Már Þórólfsson

Helenius aftur til Danmerkur (Staðfest)

Helenius í leik með Aston Villa

Helenius í leik með Aston Villa

Canon

Mynd: Getty Images

Hinn stóri og stæðilegi Nicklas Helenius er farinn aftur til Álaborgar á láni og verður þar út tímabilið.

Þessi 23 ára gamli danski framherji var keyptur til Aston Villa síðasta sumar frá Álaborg fyrir kaupverð sem nemur 1,2 milljónum punda en hann hafði skorað 34 mörk í 95 leikjum fyrir þá síðarnefndu. Þá á hann tvo landsleiki að baki fyrir Danmörku.
Hann náði sér þó engan veginn á strik hjá Englandi og fékk einungis að koma inná sem varamaður í sex leikjum en honum tókst þó að skora gegn Sheffield United í enska bikarnum.

Honum var því leyft að fara til Álaborgar aftur á láni en þar vonast danski framherjinnn til að ná sér á strik á ný.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.