Fotbolti.net
09.07.14 - 20:40
Ívan Guðjón Baldursson

Jonathan dos Santos til Villarreal (Staðfest)

Jonathan dos Santos er hér gegn Wayne Rooney.

Jonathan dos Santos er hér gegn Wayne Rooney.

Canon

Mynd: Getty Images

Jonathan dos Santos er búinn að skrifa undir fimm ára samning við Villarreal á Spáni.

Jonathan kemur frá uppeldisfélaginu, Barcelona, þar sem hann náði aldrei að festa sig í sessi.
Jonathan er því genginn til liðs við bróður sinn Giovani dos Santos sem er eftirsóttur af liðum víðsvegar um Evrópu eftir fína frammistöðu á HM með Mexíkó.

Villarreal er búið að kynna leikmaninn á Twitter og verður hann kynntur opinberlega eftir læknisskoðun næsta fimmtudag.

Kaupverðið er tæplega 2 milljónir evra en ákvæði segir að Börsungar fái ákveðna prósentu ef Jonathan verður seldur í framtíðinni.

Heimild: Soccerway

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.