Fotbolti.net
09.07.16 - 08:30
Jóhann Ingi Hafþórsson

Bournemouth kaupir efnilegasta leikmann Leeds (Staðfest)

Cook í baráttunni við Troy Deeney.

Cook í baráttunni við Troy Deeney.

Canon

Mynd: Getty Images

Lewis Cook er farinn frá Leeds United til Bournemouth.
Cook er einn af efnilegri leikmönnum Englands um þessar mundir en þrátt fyrir að vera aðeins 19 ára, var hann lykilmaður hjá Championship liðinu.

Hann var partur af U-17 landsliði Englendinga sem varð Evrópumeistari í þeim aldursflokki.

Miðjumaðurinn varð ungi leikmaður ársins í ensku neðri deildunum en leikmenn eins og Gareth Bale og Dele Alli hafa áður unnið þau verðlaun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.