09.07.16 - 15:58
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Valur bætir við sig tveimur Dönum til viðbótar (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
Tveir Danir hið minnsta munu koma til Vals í félagsskiptaglugganum. Áður hafði verið greint frá því að hægri bakvörðurinn Andreas Albech væri á leiðinni frá Skive og nú hefur einnig verið greint frá því að miðjumaðurinn Kristian Gaarde kemur frá Velje.
Frá þessu er greint á bold.dk.
Félagaskiptaglugginn hér á landi opnar 15. júlí næstkomandi og því eru leikmennirnir ekki löglegir með liðinu fyrr enþá.
Albech átti hálft ár eftir af samningi sínum við Skive IK en honum hefur nú verið rift svo hann geti gengið til liðs við Val.
Gaarde mun einnig ganga til liðs við Val, en hann er miðjumaður sem lék síðast með Velje. Hann var samningsbundinn liðinu frá 2013, lék 34 leiki og skoraði í þeim sjö mörk.
Fyrir eru þrír danskir leikmenn hjá Val og verða þeir því fimm þegar félagsskiptaglugginn opnar eftir nokkra daga. Rasmus Christiansen, Rolf Toft og Nikolaj Hansen hafa spilað með Hlíðarendaliðinu í sumar.
Ekki hefur gengið sem skildi hjá Val, en liðið er með 11 stig í 7. sæti Pepsi-deildarinnar, að níu umferðum loknum. Liðið féll úr Evrópudeildinni eftir stórt tap gegn Bröndby á dögunum.

Heimild: Bold.dk