09.07.22 - 09:30
Brynjar Ingi Erluson
Vigdís Edda riftir við Þór/KA (Staðfest)

Vigdís Edda er farin frá Þór/KA

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vigdís Edda er farin frá Þór/KA

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vigdís Edda Friðriksdóttir hefur fengið samningi sínum við Þór/KA rift, aðeins fimm mánuðum eftir að hún gerði tveggja ára samning við félagið.
Vigdís, sem er 22 ára gömul, samdi við Þór/KA í febrúar en hún kom til félagsins frá Breiðabliki.
Þessi öflugi miðjumaður er uppalin í Tindastól en skipti yfir í Breiðablik fyrir tveimur árum.
Hún á að baki 147 leiki og 36 mörk með þessum þremur félögum en hefur nú fengið samningi sínum við Þór/KA rift.
Vigdís spilaði níu leiki með Þór/KA í Bestu deildinni í sumar en hún var inn og út úr byrjunarliði liðsins.
Þór/KA er í 8. sæti Bestu deildarinnar með 10 stig þegar mótið er hálfnað.