Ægir Jarl Jónasson er samkvæmt heimildum Fótbolta.net að ganga í raðir danska félagsins AB frá KR. Fjallað var fyrst um áhuga danska félagsins á Ægi í síðasta mánuði og nú er samkomulag milli félaganna í höfn.
Ægir, sem er 26 ára, á innan við hálft ár eftir af samningi sínum við KR og mun hann halda til Danmerkur á næstunni.
Ægir, sem er 26 ára, á innan við hálft ár eftir af samningi sínum við KR og mun hann halda til Danmerkur á næstunni.
Ægir gekk í raðir KR frá uppeldisfélagi sínu, Fjölni, fyrir tímabilið 2019 og varð Íslandsmeistari á sínu fyrsta tímabili í Vesturbænum.
Hann hefur samkvæmt Transfermarkt leikið 163 leiki í deild, bikar, Evrópu og Lengjubikar fyrir KR, skorað í þeim 30 mörk og lagt upp tíu. Hann lék á sínum tíma sex leiki fyrir U21 landsliðið og níu fyrir U17 landsliðið.
Hjá AB, sem er í Kaupmannahöfn, hittir Ægir fyrir þjálfarann Jóhannes Karl Guðjónsson, aðstoðarþjálfarann Fannar Berg Gunnólfsson og leikmanninn Ágúst Eðvald Hlynsson. AB er í C-deildinni í Danmörku, þriðju efstu deild.
Athugasemdir