Collina ver dómarana og segir þá hafa gert rétt með því að dæma mark Egypta af

Gianni Infantino og Pierluigi Collina.

Mynd: EPA

Egyptar og Francois Letexier.

Mynd: EPA

Gianni Infantino og Pierluigi Collina.

Mynd: EPA
Pierluigi Collina, yfirmaður dómaramála hjá FIFA, hefur komið dómurunum í 3-2 sigri Argentínu og Egyptalands til varnar. Hann hafnar ásökunum um hlutdrægni og segir dómara og aðra starfsmenn leiksins hafa starfað af heiðarleika og með fullu sjálfstæði.

TENGT EFNI
Egyptaland leggur fram kvörtun til FIFA
„Umræður um ákvarðanir dómara verða alltaf hluti af fótboltanum en tilefnislausar ásakanir eiga ekki heima í íþróttinni. Enginn getur dregið í efa heiðarleika dómara á HM. Enginn getur haldið því fram að hægt sé að hafa áhrif á dómgæsluna, ekki einu sinni af forseta FIFA (Gianni Infantino)," segir Collina en Frakkinn Francois Letexier dæmdi leikinn.
Hossam Hassan, þjálfari Egyptalands, segir að það gæti hafa verið þrýstingur á dómarann að halda Argentínu í mótinu og egypska sambandið lýsti yfir áhyggjum af því að brögð hefðu verið í tafli og leikurinn ekki dæmdur heiðarlega.
Óánægja var með að mark Mostafa Zico í seinni hálfleik var dæmt af þar sem aukaspyrna var dæmd í aðdragandanum eftir VAR skoðun. Collina segir hinsvegar að VAR hafi réttilega dæmt markið af þar sem Marwan Attia hefðu brotið á Lisandro Martínez þegar sóknin hófst.
„Brot er brot í okkar huga. Ef dómarinn tekur ekki eftir leikbroti í aðdraganda marks þá getur VAR brugðist við," segir Collina og ver einnig þá ákvörðun að dæma Egyptum ekki vítaspyrnu í aðdragandanum að sigurmarki Argentínu.