Fotbolti.net
09.07.26 - 17:00
Kári Snorrason

Quansah fær tveggja leikja bann

Quansah fær tveggja leikja bann
Canon

Mynd: EPA

Jarell Quansah hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann af FIFA eftir rauða spjaldið sem hann fékk gegn Mexíkó.

Hann verður því í leikbanni gegn Noregi í 8-liða úrslitum og í undanúrslitaleiknum skyldi England vinna Noreg.
Quansah fékk að líta rauða spjaldið í kjölfarið á VAR skoðun eftir harkalega tæklingu á Mexíkóann Jesus Gallardo.

Enska fótboltasambandið íhugaði að áfrýja dómnum eftir að Folarin Balogun fékk rauða spjald sitt afturkallað fyrir leik hans gegn Belgíu.

Quansah hefur leikið í hægri bakverði fyrir England á mótinu en Reece James er að snúa til baka eftir meiðsli og ætti að vera til taks gegn Norðmönnum á laugardag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.