Fotbolti.net
09.08.13 - 18:34
Brynjar Ingi Erluson

Ignasi Miquel til Leicester á láni (Staðfest)

Ignasi Miquel til Leicester á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ignasi Miquel, leikmaður Arsenal á Englandi, hefur verið lánaður til Leicester City í ensku fyrstu deildinni.
Miquel, sem er 20 ára gamall varnarmaður, mun styrkja Leicester gríðarlega, en hann á 14 leiki að baki með Arsenal.

Þessi spænski varnarmaður ólst upp hjá Barcelona áður en hann fór til Arsenal, en ekki var þó pláss fyrir hann í leikmannahópnum hjá enska úrvalsdeildarfélaginu.

Hann fær því mikla reynslu í ensku fyrstu deildinni, en Nigel Pearson, stjóri Leicester er afar ánægður með leikmanninn.

,,Ignasi er efnilegur miðvörður og gefur okkur fleiri möguleika í vörninni. Hann er mjög metnaðarfullur og ánægður með að vera hér,\" sagði Pearson.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.