Fotbolti.net
09.08.21 - 14:19
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Aron Sig til Horsens (Staðfest)

Aron Sigurðarson.

Aron Sigurðarson.

Canon

Mynd: Horsens

Aron Sigurðarson er genginn í raðir Horsens í Danmörku og skrifar undir samning til ársins 2024 við danska félagið.

Aron kemur frá St. Gilloise í Belgíu þar sem hann hefur leikið undanfarin ár. Hann er uppalinn í Fjölni en hélt til Noregs í atvinnumennsku árið 2016 og lék með Tromsö í tvö ár. Í kjölfarið lék hann í tvö ár með Start áður en hann skipti yfir til Belgíu eftir tímabilið 2019.

Tækifærin hjá St. Gilloise voru ekki alltof mörg en Aron skoraði þó sjö mörk í 23 deildarleikjum á einu og hálfu tímabili.
Horsens leikur í dönsku B-deildinni eftir að hafa fallið úr Superliga í vor. Næsti leikur Horsens er á föstudaginn. Hjá félaginu hittir Aron fyrir Ágúst Eðvald Hlynsson sem gekk í raðir félagsins frá Víkingi fyrir tæpu ári síðan.

„Þegar Horsens sýndi mér áhuga ræddi ég við Ágúst og kynnti mér félagið. Ég var ánægður með það sem mér var sagt og það sem ég las um félagið. Markmiðið er að hjálpa liðinu að komast aftur upp í Superliga," sagði Aron í viðtali sem birt var á heimasíðu félagsins.

„Það má búast við sóknarsinnuðum leikmanni sem reynir að skora mörk og búa til færi fyrir liðsfélagana. Ég mun alltaf leggja hart að mér til að hjálpa liðinu," sagði Aron.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.