Fotbolti.net
09.08.21 - 09:30
Elvar Geir Magnússon

Bojan kominn til Japans (Staðfest)

Bojan Krkic.

Bojan Krkic.

Canon

Mynd: Getty Images

Bojan Krkic hefur gengið í raðir japanska félagsins Vissel Kobe.

Þessi fyrrum leikmaður Stoke og Barcelona er þrítugur. Hann hóf feril sinn hjá Börsungum en spilaði fyrir Stoke 2014-2019. Hann spilaði einni fyrir Roma, AC Milan og Ajax.

Hann hefur verið án félags síðan í lok árs 2020 þegar hann yfirgaf MLS-deildarliðið Montreal Impact.
„Þetta er frábært tækifæri fyrir mig, bæði persónulega og fotboltalega," segir Bojan.

Vissel Kobe er í þrðja sæti japönsku deildarinnar en í liðinu eru meðal annars Andrés Iniesta (37), fyrrum miðjumaður Barcelona, og Thomas Vermaelen (35), fyrrum varnarmaður Arsenal.

„Iniesta skipar sérstakan sess hjá mér og það er ánægjulegt að geta spilað með honum aftur. Ég vonast til að skora fullt af mörkum með hans aðstoð," segir Bojan.

Bojan varð yngsti leikmaðurinn til að skora fyrir Barcelona í La Liga þegar hann spilaði sinn fyrsta leik 2007, 17 ára gamall. Hann hjálpaði liðinu í þrígang að vinna spænska titilinn og Meistaradeildina í tvígang.

Hann lék einn landsleik fyrir Spán og skorað 16 mörk í 86 leikjum þegar hann var hjá Stoke.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.