09.08.21 - 10:05
Elvar Geir Magnússon
Messi kynntur við Eiffel-turninn

Messi. Það eru allir að tala um Messi.

Mynd: Getty Images

Fer Kane til City? Eða fer Kane ekki til City?

Mynd: EPA

Martial er orðaður við Inter.

Mynd: Getty Images

Matheus Cunha.

Mynd: EPA

Messi. Það eru allir að tala um Messi.

Mynd: Getty Images

Messi, Kane, Martial, Trippier, Haaland, Icardi, Griezmann, Origi, Dzeko og fleiri í slúðurpakkanum á þessum sérdeilis prýðilega mánudegi.
Argentínski framherjinn Lionel Messi (34) mun fara í læknisskoðun í dag áður en hann gengur formlega í raðir Paris St-Germain á frjálsri sölu. (L'Equipe)
Messi verður opinberaður sem PSG leikmaður við sérstaka athöfn við Eiffel-turninn á komandi dögum. (ESPN)
Barcelona telur að franska félagið brjóti fjármálareglur ef félagið semur við Messi og hyggst leggja fram kvörtun. (Marca)
Tottenham er meðal félaga sem reyndu að semja við Messi eftir að Barca tilkynnti að hann yrði ekki áfram á Nývangi. (Express)
Nuno Espirito Santo, stjóri Tottenham, mun ræða við Harry Kane (28) í dag til að reyna að sannfæra enska landsliðsmanninn um að vera áfram hjá Spurs þrátt fyrir áhuga Manchester City. (Mail)
City treystir á að Kane sjálfur sannfæri Daniel Levy, stjórnarformann Tottenham, um að leyfa sér að fara til ensku meistaranna. (Sunday Mirror)
Arsenal er tilbúið að reyna að fá Kieran Trippier (30) frá Atletico Madrid en Manchester United hefur ekki náð samkomulagi um verð á enska landsliðsmanninum. (Sun)
Manchester United er tilbúið að selja franska framherjann Anthony Martial (25) fyrir 40 milljónir punda en Inter hefur áhuga á að fá hann til að fylla skarð Romelu Lukaku (28) sem er nálægt því að ganga í raðir Chelsea. (Sun)
Jose Mourinho, stjóri Roma, hefur áhuga á að fá argentínska sóknarmanninn Mauro Icardi (28) frá Paris St-Germain. Bosníumaðurinn Edin Dzeko (35) er líklegur til að yfirgefa ítölsku höfuðborgina og ganga í raðir Inter. (Gazzetta dello Sport)
Dzeko er nálægt því að fara til Inter til að fylla skarð Lukaku. (Sun)
Arsenal er í baráttu við Tottenham um serbneska sóknarmanninn Dusan Vlahovic (21) hjá Fiorentina. Tottenham hefur áhuga á að fá hann ef Harry Kane fer. (Gianluca Di Marzio)
Southampton er að reyna að tryggja sér Alex Oxlade-Chamberlain (27), leikmann Liverpool, aftur. Uxinn yfirgaf Dýrlingna fyrir tíu árum síðan. (Sun)
Hasan Salihamidzic íþróttastjóri Bayern München staðfestir að þýska félagið hafi áhuga á norska sóknarmanninum Erling Haaland (21) hjá keppinautunum í Borussia Dortmund. (Goal)
Manchester United undirbýr tilboð í franska framherjann Antoine Griezmann (30) hjá Barcelona. (Todofichajes)
Porto, West Ham, Leeds og Norwich hafa öll verið orðuð við enska miðjumanninn Fabio Carvalho (18) sem hafnaði tilboði Fulham um framlengdan samning. (Mail)
Leicester City gæti reynt aftur að fá Jannik Vestergaard (29) frá Southampton vegna meiðsla Wesley Fofana. West Ham hefur einnig verið orðað við danska miðvörðinn. (Talksport)
West Ham er í viðræðum um að fá belgíska sóknarmanninn Divock Origi (26) frá Liverpool. (Football Insider)
Leeds United hefur áhuga á Matheus Cunha (22), miðjumanni Herthu Berlín, en hann vann Ólympíugull með Brasilíu um helgina. (Star)
Atalanta hefur einnig verið orðað við Cunha en verðmiðinn á honum hefur hækkað upp í 25 milljónir punda eftir velgengnina í Japan. (Calciomercato)
Southampton vill fá albanska framherjann Armando Broja (19) lánaðan frá Chelsea. (Football.London)
Burnley hefur verið orðað við brasilíska vængmanninn Arthur Gomes (23) sem er á láni hjá Atletico Goianiense. (Burnley Express)
Barcelona hefur boðið brasilíska markvörðinn Neto (32) til Arsenal og Tottenham. (Express)
Brighton vill fá vinstri bakvörðinn Marc Cucurella (23), sem spilaði úrslitaleik Ólympíuleikana og fékk silfur með Spáni, frá Getafe. (Argus)
Nokkur félög í Championship-deildinni hafa áhuga á portúgalska markverðinum Joao Virginia (21) sem Everton hyggst lána. (Liverpool Echo)