09.08.21 - 10:39
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Murat Yakin tekur við Sviss (Staðfest)

Murat Yakin.

Mynd: Getty Images

Murat Yakin.

Mynd: Getty Images
Svissneska knattspyrnusambandið er búið að ráða nýjan landsliðsþjálfara.
Vladimir Petković er hættur eftir sjö ár í starfi. Við liðinu tekur Murat Yakin.
Yakin er 46 ára gamall og fyrrum landsliðsmaður Sviss. Hann spilaði 49 A-landsleiki fyrir Sviss á sínum leikmannaferli en lagði skóna á hilluna fyrir 15 árum síðan.
Hann hefur starfað við þjálfun frá því hann hætti. Hann hefur stýrt FC Schaffhausen tvisvar, Thun, Basel, Luzern og Grasshoppers. Hann hefur einu sinni stýrt félagi utan Sviss; Spartak Moskvu í Rússlandi 2014-15.
Hann skrifaði undir samning sem gildir út undankeppni HM, sem er núna í gangi, með möguleika á framlengingu.