Fotbolti.net
09.08.21 - 19:52
Brynjar Ingi Erluson

Norwich kaupir bandarískan landsliðsmann (Staðfest)

Josh Sargent er mættur til Norwich

Josh Sargent er mættur til Norwich

Canon

Mynd: Heimasíða Norwich City

Enska úrvalsdeildarfélagið Norwich City gekk í kvöld frá kaupum á bandaríska framherjanum Josh Sargent frá Werder Bremen.
Sargent er 21 árs gamall og gerir fjögurra ára samning við Norwich en félagið greiðir 8 milljónir punda.

Bandaríski framherjinn hefur spilað 93 leiki og skorað 22 mörk fyrir Bremen á þeim fimm árum sem hann hefur verið hjá félaginu.

Hann á þá 16 landsleiki og 5 mörk fyrir Bandaríkin.

Þetta er sjöundi leikmaðurinn sem Norwich fær til sín í sumar en félagið vann sig aftur upp í ensku úrvalsdeildina á síðasta tímabili og mætir Liverpool í fyrstu umferð um helgina.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.