Liverpool vill fá Suarez - Bayern meðvitað um áhuga frá Sádi - Leikmaður Palace heillar stórlið - Barca býður lægri laun
Ísak Bergmann: Langt síðan við höfum farið ósigraðir úr glugga
Jón Dagur: Verður eins og Covid leikur
Ellefu dagar í Bestu - Gæðastjórinn útskýrir xF
Steini: Hún er á mun betri stað en fyrir hálfu ári
Davíð Örvar: Við gefum öllum liðum leik
Maggi: Hann átti frábæran leik í dag
41 árs Birkir Már: Vonandi í síðasta skipti sem ég næ ekki 90 mínútum
Valdimar Þór: Skil dómarann að gefa mér gult
Daniel Badu: Þessi leikur sýndi okkur að við eigum enn eitthvað í land
Sölvi Geir um óvænta innkomu Sveins Margeirs: Þetta er okkar leikmaður og við pössum upp á þá
„Þurfum að læra sem lið að loka þessum leikjum"
Mikael Egill svekktur: Hann hló og sagði ekki séns
Arnar: Leið eins og við værum að spila á móti liði frá 1980
Orri Steinn þakklátur - „Maður tekur þessu ekki sem sjálfsögðum hlut"
Jasmín Erla: Það er galið að maður sé að spila í þessu
Ian Jeffs: Ég ætla ekki að tjá mig um það
Tomasz Luba: Það er ekkert lélegt að koma hingað og tapa 3-1
„Frábær áskorun að vera spáð góðu gengi frekar en að vera brandaralið"
Siggi Höskulds: Eina markmið leiksins og vikunnar var að bæta fyrir það
Bjarni: Held ég hafi aldrei hitt hann svona vel
   mán 09. ágúst 2021 22:28
Arnar Laufdal Arnarsson
Toddi Örlygs: Mörk breyta leikjum
Þorvaldur ásamt Ejub Purisevic aðstoðarmanni sínum í Garðabænum í kvöld.
Þorvaldur ásamt Ejub Purisevic aðstoðarmanni sínum í Garðabænum í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í kvöld áttust við Stjarnan og Breiðablik í 16. umferð Pepsi-Max deildar karla en þar enduðu leikar með 3-1 sigri Breiðablik. Mörk Blika skoruðu Viktor Karl Einarsson og Höskuldur Gunnlaugsson fyrirliði Blika skoraði tvö. Mark Stjörnumanna skoraði Oliver Haurits.

" Alltaf jafn slæmt að tapa, fyrri hálfleikur var ekki alveg nógu góður þótt fyrstu 20 voru allt í lagi fram að fyrsta markinu þá vorum við með ágætt skipulag en svo var smá brekka fram að hálfleik. Eftir við gerðum skiptingar þá komumst við aðeins inn í leikinn og settum smá pressu á þá en ekki nægilega mikla" Sagði Þorvaldur Örlygsson þjálfari Stjörnunnar í viðtali eftir leik.

Lestu um leikinn: Stjarnan 1 -  3 Breiðablik

Það var allt annað að sjá til Stjörnuliðsins í síðari hálfleik þar sem þeir gerðu fjórfalda skiptingu eftir klukkutíma leik.

"Stundum þróast leikirnir bara þannig, við vorum í góðum málum þangað til að þeir skora annað markið og það vill oft vera þannig að mörk breyta leikjum og við náðum ekki að eltast við það og við komum betri í seinni hálfleikinn vissulega, vorum nálægt því að minnka leikinn í 3-2 og setja enn meiri pressu á þá en það náðist ekki "

Tristan Freyr Ingólfsson einn af mjög spennandi ungu leikmönnum Stjörnunnar er fjarrverandi vegna meiðsla.

"Hann er að fara í aðgerð á næstu dögum eftir krossbandaslit þannig hann verður frá"

Stjarnan einungis þremur stigum frá falli þegar það eru 6 leikir eftir, er Toddi smeykur um stöðu liðsins?

" Við skulum sjá til, það eru sex leikir eftir og við verðum að berjast fyrir því sem eftir er, við vissum það alltaf, hvort sem það sé þessi leikur eða aðrir þá höldum við bara áfram"

Viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.
Slapp
Athugasemdir
banner