09.08.26 - 22:05
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta deildin: Kærkominn sigur hjá Valsmönnum

Jónatan Ingi innsiglaði sigur Vals

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jónatan Ingi innsiglaði sigur Vals

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik 1 - 3 Valur
0-1 Dagur Orri Garðarsson ('38 )
1-1 Davíð Ingvarsson ('54 )
1-2 Tryggvi Hrafn Haraldsson ('78 )
1-3 Jónatan Ingi Jónsson ('89 )
Rautt spjald: Helgi Jónas Guðfinnsson, Breiðablik ('83) Lestu um leikinn

Valur heimsótti Breiðablik í síðasta leik dagsins í Bestu deildinni. Dagur Orri Garðarsson átti gott skot eftir tuttugu mínútna leik en Anton Ari Einarsson varði frábærlega frá honum.
Dagur náði hins vegar að brjóta ísinn undir lok fyrri hálfleiks með laglegu marki. Hann fór illa með Davíð Ingvarsson áður en hann skoraði framhjá Antoni.
Davíð náði að bæta upp fyrir þetta snemma í seinni hálfleik þegar hann skoraði með föstu skoti.
Valsmenn skoruðu þegar stundafjórðungur var til loka venjulegs leiktíma en markið var dæmt af þar sem Sigurður Hjörtur Þrastarson, dómari leiksins, dæmdi vitlaust innkast.
Stuttu síðar skoraði Tryggvi Hrafn Haraldsson með skalla og kom Val yfir.
Jónatan Ingi Jónsson innsiglaði sigur Vals undir lokin þegar hann skoraði á opið markið eftir að hann og Tryggvi Hrafn fóru illa með varnarmenn Breiðabliks.
Virkilega sterkur sigur hjá Valsmönnum sem höfðu tapað fjórum deildarleikjum í röð. Þetta voru fyrstu stig liðsins undir stjórn Chris Brazell.
Valur er í 5. sæti með 22 stig, sjö stigum á eftir Blikum sem eru í 4. sæti. Þetta var annað tap Blika í röð.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 18 | +42 | 45 |
| 2 | Fram | 17 | +14 | 37 |
| 3 | KR | 17 | +22 | 36 |
| 4 | Breiðablik | 18 | +6 | 29 |
| 5 | Valur | 18 | -5 | 22 |
| 6 | ÍA | 18 | -6 | 22 |
| 7 | Keflavík | 18 | -6 | 22 |
| 8 | Stjarnan | 18 | -10 | 21 |
| 9 | ÍBV | 18 | -9 | 17 |
| 10 | FH | 18 | -10 | 17 |
| 11 | KA | 18 | -12 | 15 |
| 12 | Þór | 18 | -26 | 15 |