09.10.13 - 13:52
Magnús Már Einarsson
Bjarni Guðjónsson tekinn við Fram (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Bjarni Guðjónsson hefur verið ráðinn þjálfari Fram en þetta staðfesti hann í samtali við Fótbolta.net nú rétt í þessu.
Nokkrir þjálfarar hafa verið orðaðir við Fram undanfarna daga eftir að Ríkharður Daðason ákvað að halda ekki áfram með liðið.

Undanfarin ár hefur Bjarni aflað sér þjálfararéttinda og hann hefur stefnt á að fara út í þjálfun en Fram er fyrsta liðið sem hann þjálfar.
Bjarni er 34 ára gamall en hann hjálpaði KR-ingum að verða Íslandsmeistari í sumar sem og árið 2011.
Bjarni hefur verið fyrirliði KR undanfarin ár en hann kom til félagsins frá uppeldisfélagi sínu ÍA á miðju sumri 2008.
Hann kom heim úr atvinnumennsku árið 2006 eftir að hafa verið á mála hjá Newcastle, Genk , Stoke, Bochum, Coventry og Plymouth Argyle.