Fotbolti.net
09.10.13 - 14:00
Elvar Geir Magnússon

Ragnar Gíslason ráðinn þjálfari HK/Víkings (Staðfest)

Ragnar Gíslason.

Ragnar Gíslason.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Ragnar Gíslason, fyrrum þjálfari meistaraflokks karla hjá HK, hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs HK/Víkings sem féll úr Pepsi-deildinni í sumar.

„Horft er þannig til þessara tveggja ára með það að leiðarljósi að liðið nái að vinna sig upp um deild haustið 2014 og svo tryggja sér áframhaldandi veru í deild þeirra bestu haustið 2015,\" segir á heimasíðu HK.
Hér að neðan má sjá fréttina af hk.is í heild:
Gengið hefur verið frá því að Ragnar Gíslason taki að sér þjálfun meistaraflokks HK/Víkings. Samningur milli Ragnars og HK/Víkings er til tveggja ára en markmiðið sem að er stefnt felst í að á þeim tíma hafi liðið haslað sér völl á nýjan leik í úrvalsdeild en liðið féll í 1. deild núna í haust eftir eins árs dvöl meðal þeirra bestu.

Horft er þannig til þessara tveggja ára með það að leiðarljósi að liðið nái að vinna sig upp um deild haustið 2014 og svo tryggja sér áframhaldandi veru í deild þeirra bestu haustið 2015.

Auk þess að vera þrautreyndur þjálfari með mikinn faglegan metnað þekkir Ragnar vel til leikmannahóps HK/Víkings en hann stýrði liði 2. flokks í sumar sem vann B keppnina með miklum yfirburðum, tapaði einungis einum leik og vann flesta með þriggja marka mun hið minnsta.

Núna bíður Ragnar það verkefni að byggja ofan á það ágæta starf sem Björn Kr. Björnsson fyrrum þjálfari HK/Víkings var búinn að inna af hendi í uppbyggingu á liðinu á liðnu keppnistímabili. Miklar væntingar eru gerðar til þess að vel takist til í þessum efnum öll. Auk þess að sinna þjálfun meistaraflokks mun Ragnar hafa náið samstarf með þjálfara 2. flokks enda horft til uppbyggingar liðs HK/Víkings til framtíðar en Ragnar mun að auki sinna áfram starfi yfirþjálfara yngri flokka HK.

Ragnar hefur þjálfað hjá HK frá haustinu 2009 en auk þess að vera yfirþjálfari yngri flokka tók hann við meistaraflokki karla í júní 2011 og stýrði liðinu til loka Íslandsmótsins 2012. Áður var Ragnar lengi leikmaður Stjörnunnar og Leifturs, og lék með báðum félögunum í efstu deild. Hann þjálfaði síðan talsvert hjá Stjörnunni, m.a. bæði meistaraflokk og 2. flokk karla, á árunum 2000 til 2008.
Ragnar Gíslason ráðinn þjálfari HK/Víkings (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.