09.10.14 - 18:48
Hafliði Breiðfjörð
Bjarni Ólafur áfram í Val - Matthías kominn aftur (Staðfest)

Bjarni Ólafur Eiríksson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Matthías Guðmundsson.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Bjarni Ólafur Eiríksson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valur hefur gert nýjan tveggja ára samning við varnarmanninn Bjarna Ólaf Eiríksson en fyrri samning hans var sagt upp fyrr í vikunni.
Bjarni er lykilmaður hjá Val og lék alla 22 leiki liðsins í sumar. Bjarni hefur verið mikill styrkur fyrir Valsliðið undanfarin ár og hampaði m.a. Íslandsmeistaratitli með liðinu árið 2007.
,,Valsmenn eru stoltir af þessum frábæra liðsmanni og gleðiefni að hann verði áfram með liðinu,\" segir í fréttatilkynningu frá Val en Bjarni er sjálfur ánægður með nýja samninginn. Hann bíður spenntur eftir að starfa með Ólafi Jóhannessyni og Sigurbirni Hreiðarssyni sem voru ráðnir þjálfarar í kvöld.
„Ég ætla að taka þátt í þeim spennandi verkefnum sem framundan eru og get ekki beðið eftir að byrja að æfa hjá Óla og Bjössa. Eins líst mér rosalega vel á þá stefnu sem mér hefur verið kynnt af stjórn og samstarfi við 2. og 3. flokk,“ sagði Bjarni.
Matthías Guðmundsson er einnig kominn aftur til Vals en hann tekur við 3.flokki karla og mun æfa með liðinu.. Hann var aðstoðarþjálfari hjá Haukum á nýliðnu tímabili og starfaði þar með Sigurbirni Hreiðarssyni.
Matthías er uppalinn Valsmaður og varð bikarmeistari með liðinu árið 2005. Hann lék alls 215 leiki með Val og skoraði alls 41 mark ásamt því að spila 4 landsleiki fyrir Ísland. Hann varð síðar Íslandsmeistari með FH.
„Mér líður einfaldlega langbest í Val og á Hlíðarenda. Það eru spennandi tímar framundan og ég sé ekkert nema tækifæri,\" sagði Matthías.
Salih Heimir Porsha hefur verið ráðinn þjálfari 2. flokks Vals. Hann lék með Val á árum áður og hampaði m.a. bikarmeistaratitli með liðinu árið 1992. Í heildina lék Salih Heimir 69 leiki fyrir Val í efstu deild.
,,Meistaraflokkur og 2. og 3. flokkar karla eiga að vinna náið saman til framtíðar og tryggja þannig stöðu Vals sem eins helsta afrekssfélag landsins,\" segir í tilkynningu Valsmanna.

Salih Heimir Porca.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð