09.10.14 - 18:42
Hafliði Breiðfjörð
Óli Jó og Sigurbjörn taka við Val (Staðfest)

Ólafur og Sigurbjörn störfuðu saman hjá Haukum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ólafur Jóhannesson.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Ólafur og Sigurbjörn störfuðu saman hjá Haukum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Jóhannesson og Sigurbjörn Hreiðarsson hafa tekið við þjálfun Vals en þeir skrifuðu í dag undir þriggja ára samning við félagið.
Þeir taka við liðinu af Magnúsi Gylfasyni sem hætti fyrr í vikunni eftir tveggja ára starf.
Þeir taka við liðinu af Magnúsi Gylfasyni sem hætti fyrr í vikunni eftir tveggja ára starf.
Fréttatilkynning frá Val
Ólafur Jóhannesson og Sigurbjörn Hreiðarsson taka að sér þjálfun meistaraflokks karla í knattspyrnu til næstu 3ja ára.
Ólafur hefur verið afar sigursæll þjálfari sem hefur hampað Íslandsmeistaratitli þrisvar sinnum m.a. með Val árið 1987. Hann hefur einnig verið landsliðsþjálfari Íslands og gaf mörgum af núverandi leikmönnum sín fyrstu tækifæri með A- landsliði Íslands.
„Það er spennandi áskorun að þjálfa Val og get ég ekki beðið eftir að byrja vinna með strákunum. Í mínum huga á Valur að keppa til sigurs í öllum mótum sem liðið tekur þátt í, alltaf,“ sagði Ólafur.
Sigurbjörn Hreiðarsson þarf ekki að kynna fyrir Valsmönnum enda lifandi goðsögn að Hlíðarenda. Sigurbjörn lék yfir 300 leiki með Val og varð fyrst bikarmeistari með liðinu árið 1992 og svo aftur 2005 og Íslandsmeistari árið 2007. Sigurbjörn þjálfaði með Ólafi Jóhannessyni hjá Haukum árið 2012 og tók síðan alfarið við liðinu 2013 og stýrði liðinu með ágætis árangri.
,,Mjög spennandi og jafnframt krefjandi verkefni að vera kominn aftur á Hlíðarenda. Hef haldið hollri fjarlægð síðustu ár og hungrar að taka slaginn aftur í Val með Óla og reyna virkja vel þá Valsmenn sem eru út um allt. Það er mikið verk fyrir höndum og það þarf þolinmæði. Ef stuðningsmenn, stjórn, leikmenn og þjálfarar ganga allir í takt og virka sem ein heild getum við komið Val aftur í toppbaráttu, þar sem við teljum okkur eiga heima,\" sagði Sigurbjörn.

Ólafur Jóhannesson.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
