09.10.14 - 22:26
Magnús Már Einarsson
Óli Stefán inn í þjálfarateymi Grindavíkur (Staðfest)

Frá undirskriftinni í kvöld.

Mynd: Grindavík

Frá undirskriftinni í kvöld.

Mynd: Grindavík
Í kvöld var Óli Stefán Flóventsson ráðinn í þjálfarateymi Grindavíkur. Tommy Nielsen tók við þjálfun liðsins á dögunum og Óli Stefán mun starfa með honum.
<i>,,Óli Stefán Flóventsson er kominn aftur heim og kemur inn í þjálfarateymi meistaraflokks karla. Einnig mun hann þjálfa 3. flokk karla auk annarra starfa fyrir klúbbinn,\"</I> segir í fréttatilkynningu frá Grindavík í kvöld.
Óli Stefán hætti sjálfur sem þjálfari Sindra í 2. deild á dögunum eftir fimm ára starf á Höfn í Hornafirði.
Óli er öllum hnútum kunnugur í Grindavík en hann lék með meistaraflokki félagsins frá 1997 til ársins 2004.

,,Ægir Viktorsson heldur áfram sem þjálfari meistaraflokks kvenna og yfirþjálfari yngri flokka. Einnig mun hann þjálfa 3. flokk kvenna. Knattspyrnudeild Grindavíkur býður þá velkomna til starfa,\" segir einnig í fréttatilkynningunni.