Fotbolti.net
09.10.26 - 07:05
Elvar Geir Magnússon

Real sýnir McTominay áhuga - Wirtz skortir trú

McTominay með skoska landsliðinu.

McTominay með skoska landsliðinu.

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Landsleikjaglugginn er að baki og enska úrvalsdeildin fer aftur í gang á morgun. Það er mikil tilhlökkun til helgarinnar hjá mörgum lesendum. Góða skemmtun!
Real Madrid fylgist grannt með samningaviðræðum Scott McTominay (29) við Napoli en spænska stórliðið hefur áhuga á að fá þennan skoska miðjumann til sín eftir tímabilið. (Tuttomercato)

Ólíklegt þykir að Manchester United fái McTominay aftur á Old Trafford þar sem félagið einbeitir sér að því að fá yngri leikmenn. (Football Insider)

Didi Hamann segist skynja að Florian Wirtz (23) hafi ekki nægilega trú á sjálfum sér hjá Liverpool og að hann njóti þess ekki að spila. (Sky Sports Austurríki)

Bayern München vill framlengja við franska kantmanninn Michael Olise (24) en núverandi samningur gildir til ársins 2029. Líklegt þykir að hann verði áfram hjá þýska félaginu nema hann fari til Real Madrid. (Sky Sports Þýskalandi)

Manchester United hefur boðið sóknarmiðjumanninum JJ Gabriel (16) formlegan samning en félagið gæti aðeins fengið 350 þúsund pund fyrir hann ef hann ákveður að yfirgefa félagið og fara erlendis. (Guardian)

Chelsea hefur áhuga á að fá hollenska miðjumanninn Frenkie de Jong (29) sem leikur með Barcelona. Chelse telur sig ekki hafa fyllt skarð Enzo Fernandez sem gekk til liðs við Manchester City á lokadegi félagaskiptagluggans. (Sport)

Liverpool er með endurkaupsákvæði upp á 59,5 milljónir punda vegna varnarmannsins Jarell Quansah (23) hjá Bayer Leverkusen. Enski landsliðsmaðurinn, sem hefur verið orðaður við Real Madrid og Chelsea, er tregur til að snúa aftur á Anfield. (Football Insider)

Juventus hefur efasemdir um þýska sóknarmanninn Nick Woltemade (24) sem er í láni hjá félaginu frá Newcastle og skoðar nú aðra kosti, þar á meðal Folarin Balogun (25) sem leikur með Mónakó og bandaríska landsliðinu. (Gazzetta dello Sport)

Newcastle og Everton hafa bæði áhuga á miðjumanninum Gabriel Sara (27) hjá Galatasaray. Brasilíski miðjumaðurinn lék í tvö ár með Norwich City áður en hann flutti til Tyrklands. (Webaslan)

Hull City er nálægt því að ganga frá kaupum á Deniz Donmezer (18), markverði tyrkneska liðsins Kayserispor, fyrir 1,5 milljónir punda. (Teamtalk)
Florian Wirtz.

Florian Wirtz.

Canon

Mynd: EPA

Michael Olise.

Michael Olise.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.