08.10.26 - 09:30
Kári Snorrason
Man Utd og Liverpool á eftir Truffert - Arsenal gefst ekki upp á Alvarez

Adrien Truffert.

Mynd: EPA

Arsenal á eftir Alvarez.

Mynd: EPA

Carvajal enn án félags.

Mynd: EPA

Sagður vera að skrifa undir nýjan langtímasamning við Arsenal.

Mynd: EPA

Adrien Truffert.

Mynd: EPA

Landsliðsglugginn langi er senn á enda og hefjast deildarkeppnir í Evrópu um helgina. Adrien Truffert, Julian Alvarez eru á meðal nafna í slúðurpakka dagsins sem er í boði Powerade.
Man Utd og Liverpool eru bæði með augastað á Adrien Truffert (24), vinstri bakverði Bournemouth og franska landsliðsins. Hann er metinn á um 60 milljónir punda. (Teamtalk)
Barcelona fylgist með brasilíska varnarmanninum Arthur Dias (19), leikmanni Athletico Paranaense. Tottenham hafði áður boðið 18 milljónir punda í leikmanninn en tilboði þeirra var hafnað. (Fichajes)
Newcastle er talið líklegra en Nottingham Forest til að krækja í miðjumanninn Tyler Morton (23), leikmann Lyon. Morton hefur staðið sig vel í Frakklandi eftir að hafa yfirgefið Liverpool í fyrra. (Football Insider)
Liverpool, Chelsea og Arsenal fylgjast með enska varnarmanninum Jarell Quansah (23), sem hefur fengið lof fyrir frammistöðu sína hjá Bayer Leverkusen. (Caught Offside)
Martin Ödegaard (27), fyrirliði Arsenal, er talinn vera á leiðinni að skrifa undir nýjan langtímasamning við félagið, rétt eins og Mikel Arteta stjóri liðsins. (Teamtalk)
Arsenal ætlar að gera aðra tilraun til að fá argentínska framherjann Julian Álvarez (26) frá Atlético Madrid í janúar. Álvarez er sagður íhuga alvarlega að ganga til liðs við Arsenal. (Teamtalk)
Dani Carvajal (34), fyrrverandi bakvörður Real Madrid, er enn án félags eftir að fyrirhuguð félagaskipti hans til Getafe gengu ekki eftir. (Goal)
Þýsku stórliðin Bayern Munchen og Borussia Dortmund hafa áhuga á Luca Williams-Barnett (18), ungum leikmanni Tottenham sem lék sinn fyrsta leik fyrir aðallið félagsins aðeins 16 ára gamall. (The Sun)