Fotbolti.net
08.10.26 - 20:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Ída um áhuga frá Englandi: Svo hægt að gerast

Skrifar frá Rovinj í Króatíu

Ída Marín Hermannsdóttir.

Ída Marín Hermannsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eimskip
Ída Marín Hermannsdóttir var fyrir stuttu seld frá FH til Hammarby í Svíþjóð. Hún var mjög eftirsótt og var til að mynda orðuð við Charlton á Englandi.

Ída hefur tengingu við Charlton þar sem faðir hennar, Hermann Hreiðarsson, lék með Charlton á árunum 2003-2007, en Ída er fædd á Englandi árið 2002.
Ída fékk góða hjálp - „Ég valdi rétta félagið"
TENGT EFNI

Ída fékk góða hjálp - „Ég valdi rétta félagið"

Ída var spurð út í áhugann frá Charlton í viðtali við Fótbolta.net í vikunni.

„Já, það var eitthvað til í því. Ég æfði aðeins með þeim í janúar og var næstum farin, en síðan var ég að skoða önnur félög í Englandi. Þetta var allt svo hægt að gerast og ég var að verða óþolinmóð," sagði Ída.

„Ég vildi að þetta væri komið á blað. Hammarby kom og þá tók ég ákvörðun að fara. Ég var mjög ánægð að það gerðist."
Ída endaði hjá Hammarby í Svíþjóð.

Ída endaði hjá Hammarby í Svíþjóð.

Canon

Mynd: Hammarby

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.