Fotbolti.net
09.10.26 - 15:03
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Líkleg byrjunarlið Fram og KR - Lykilmenn í banni

Fred er mættur aftur að hafa misst af nokkrum leikjum vegna meiðsla.

Fred er mættur aftur að hafa misst af nokkrum leikjum vegna meiðsla.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Klukkan 19:15 annað kvöld mun Ívar Orri Kristjánsson flauta á stórleik Fram og KR í Bestu deildinni. Deildin er að fara aftur af stað eftir þriggja vikna landsleikjahlé og þrjár umferðir eru eftir.

Leikurinn er einn mikilvægasti staki leikurinn sem eftir er þar sem þegar er ljóst hvaða lið verður Íslandsmeistari og hvaða lið fara í Evrópukeppni.

Liðið sem vinnur á morgun verður í 2. sæti þegar tvær umferðir eru eftir og því sæti fylgja þau fríðindi að fá að sitja hjá í fyrstu umferð forkeppninnar í Sambandsdeildinni næsta sumar.
Hvað er í húfi í baráttunni um annað sætið?
TENGT EFNI

Hvað er í húfi í baráttunni um annað sætið?

Ljóst er að lykilmenn verða fjarri góðu gamni. Sigurjón Rúnarsson verður ekki með Fram vegna leikbanns en hann var líka í banni í síðasta leik þessara liða. Þá verður Hrafn Tómasson, Krummi, ekki með KR.

Við spáum því að þeir Sigurður Breki Kárason, Arnór Ingvi Traustason og Orri Hrafn Kristjánsson myndi miðju KR á morgun og að Eiður Gauti Sæbjörnsson komi inn í liðið frá síðasta leik og sömuleiðis Finnur Tómas Pálmason. Hjalti Sigurðsson og Ástbjörn Þórðarson gera einnig tilkall til byrjunarliðssætis.



Við spáum því þá að Már Ægisson komi inn í lið Fram frá síðasta leik og þeir Kennie Chopart, Kyle McLagan og Þorri Stefán Þorbjörnsson myndi þriggja manna miðvarðalínu. Simon Tibbling, Israel Garcia og Kristófer Konráðsson gera einnig tilkall á byrjunarliðssæti.

Hrafn Tómasson tekur út leikbann.

Hrafn Tómasson tekur út leikbann.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurjón aftur í banni.

Sigurjón aftur í banni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Við spáum því að Eiður Gauti komi inn í byrjunarlið KR.

Við spáum því að Eiður Gauti komi inn í byrjunarlið KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Og Már Ægisson byrji hjá Fram.

Og Már Ægisson byrji hjá Fram.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Finnur Tómas var ekki með í síðasta leik gegn Víkingi.

Finnur Tómas var ekki með í síðasta leik gegn Víkingi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta karla - Efri hluti

#LiðLmunStig
1Víkingur R.24+5059
2KR24+2847
3Fram24+1246
4Breiðablik24+133
5ÍA24-333
6Keflavík24-829
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.