09.11.15 - 11:12
Magnús Már Einarsson
Andri Geir í ÍA (Staðfest) - Darren Lough framlengir

Andri Geir Alexandersson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Andri Geir Alexandersson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Varnarmaðurinn Andri Geir Alexandersson hefur gengið til liðs við uppeldisfélag sitt ÍA á nýjan leik.
Andri Geir hefur leikið með HK í 1. deildinni undanfarin tvö ár en hann spilaði áður með ÍA þar sem hann á 68 leki að baki.

Enski vinstri bakvörðurinn Darren Lough hefur framlengt samning sinn við ÍA um tvö ár.
Darren kom frá KA fyrir tímabilið 2014 en hann hefur verið fastamaður í vörn ÍA undanfarin tvö tímabil.
Eins og greint var frá fyrir helgi þá hefur varnarmaðurinn öflugi Ármann Smári Björnsson framlengt samnings inn um eitt ár og miðjumaðurinn Arnar Már Guðjónsson hefur einnig gert tveggja ára samning. Páll Gísli Jónsson og Hallur Flosason framlengdu einnig samninga sína við ÍA á dögunum.
Ennfremur hefur ÍA nýverið gert samninga við nokkra af yngri leikmönnum félagsins þá Hafþór Pétursson, Steinar Þorsteinsson, Arnór Sigurðsson og Árna Þór Árnason.
„Þá hafa fleiri yngri leikmenn sem æft hafa með meistaraflokki að undanförnu bankað hressilega á dyrnar og má allt eins búast við því að samið verði við fleiri unga leikmenn á næstu misserum,\" segir í tilkynningu frá ÍA.

Frá undirskrift um helgina.

Mynd: ÍA