09.11.15 - 20:56
Ívan Guðjón Baldursson
Eusebio Sacristan tekinn við Real Sociedad (Staðfest)

Eusebio Sacristan í leik með Real Valladolid fyrir fimmtán árum.

Mynd: Getty Images

Eusebio Sacristan hefur verið ráðinn sem eftirmaður David Moyes hjá Real Sociedad. Sacristan er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við félagið.
Moyes tókst aldrei að koma félaginu almennilega á skrið í spænsku deildinni og var rekinn fyrr í dag.

Sociedad er í fallbaráttu með níu stig eftir ellefu umferðir og á Sacristan, sem er mikils metinn eftir gott starf hjá B-liði Barcelona síðustu fjögur árin, að rétta úr kútnum.
Sacristan á flottan atvinnumannaferil að baki, þar sem hann lék fyrir Barcelona í sjö ár og spilaði 15 landsleiki fyrir Spán.
Eftir sitt síðasta tímabil sem leikmaður Real Valladolid var Sacristan ráðinn sem aðstoðarþjálfari Barcelona, þaðan fór hann til Celta og tók svo við B-liði Börsunga.