Fotbolti.net
09.11.15 - 18:25
Elvar Geir Magnússon

Hlynur Atli í Fram - Zeljko í þjálfun hjá félaginu (Staðfest)

Hlynur er kominn aftur í Fram.

Hlynur er kominn aftur í Fram.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Varnarmaðurinn Hlynur Atli Magnússon skrifaði í dag undir þriggja ára samning við 1. deildarfélagið Fram. Hlynur Atli er 25 ára og getur leikið sem miðvörður og varnarsinnaður miðjumaður.
Hlynur er uppalinn hjá Fram og lék sinn fyrsta leik fyrir meistaraflokk félagsins 2008. Hann lék lengi með liðinu í efstu deild.

Á liðnu tímabili lék hann með Florö í norsku C-deildinni en þar áður var hann hjá Þór á Akureyri.

Um leið og Framarar skrifuðu undir samning við Hlyn Atla þá var skrifað undir samning við Zeljko Óskar Sankovic.

Zeljko hefur verið ráðinn yfirmaður afreksþjálfunar knattspyrnudeildar Fram ásamt því að koma að þjálfun meistaraflokks karla.

Zeljko hefur lokið efstu gráðu í þjálfun hjá UEFA og hefur áralanga reynslu af þjálfun bæði hér á landi og erlendis.

Fram varð bikarmeistari 2013 en féll úr Pepsi-deildinni ári síðar. Liðið hafnaði í níunda sæti 1. deildar á liðnu sumri. Ásmundur Arnarsson tók við Fram eftir tímabilið.
Zeljko er reyndur þjálfari.

Zeljko er reyndur þjálfari.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.