09.11.15 - 16:12
Magnús Már Einarsson
Moyes rekinn frá Real Sociedad (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
David Moyes, þjálfari Real Sociedad, hefur verið rekinn úr starfi en félagið staðfesti þetta í yfirlýsingu sem var birt nú rétt í þessu.
Skotinn tók við Real Sociedad fyrir ári síðan eftir að hafa verið rekinn frá Manchester United nokkrum mánuðum áður.
Eftir 2-0 tap gegn Las Palmas á föstudag er Sociedad einungis markatölu frá fallsæti.

Liðið hefur einungis krækt í níu stig í fyrstu ellefu umferðunum í La Liga og Moyes hefur nú fengið að taka pokann sinn.
Billy McKinlay, aðstoðarmaður Moyes, fékk einnig að taka pokann sinn.
Billy McKinlay, aðstoðarmaður Moyes, fékk einnig að taka pokann sinn.