09.11.15 - 15:40
Elvar Geir Magnússon
Patrick Vieira ráðinn þjálfari New York (Staðfest)

Patrick Vieira.

Mynd: Getty Images

Patrick Vieira.

Mynd: Getty Images
Patrick Vieira hefur verið ráðinn þjálfari New York City fótboltafélagsins í efstu deild. Hann hefur skrifað undir þriggja ára samning og tekur við starfinu 2016.
New York er á leið í sitt annað tímabil í MLS-deildinni.

Undanfarin ár hefur Vieira verið yfirþjálfari í afreksstarfi Manchester City.
Sem leikmaður var Vieira goðsögn hjá Arsenal auk þess sem hann var fyrirliði franska landsliðsins. Þrívegis varð hann enskur meistari, vann FA-bikarinn fimm sinnum og þrisvar hampaði hann meistaratitlinum á Ítalíu.
Skiptar skoðanir eru á því hvort Vieira sé að taka rétt skref á sínum ferli en hann tekur við þjálfun New York þar sem Jason Kreis var rekinn eftir að hafa mistekist að koma liðinu í úrslitakeppnina.