Fotbolti.net
09.11.21 - 16:36
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Bjössi og Robin í FH (Staðfest)

Bjössi og Óli voru saman hjá Val.

Bjössi og Óli voru saman hjá Val.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH er búið að tilkynna um ráðningu á Sigurbirni Hreiðarssyni sem tekur við sem aðstoðarþjálfari liðsins. Hann verður Ólafi Jóhannessyni til aðstoðar með karlalið félagsins.

Sigurbjörn þekkir Ólaf Jóhannesson þjálfara liðsins vel, saman unnu þeir tvo Íslandsmeistaratitla árin 2017 og 2018 og tvo bikarmeistaratitla 2015 og 2016. Bjössi þjálfaði Grindavík á síðasta ári í Lengjudeildinni, áður hafði hann verið aðstoðarþjálfari hjá Val frá 2014-2019.
Þá tilkynnti FH að Robin Adriaenssen hefði verið ráðinn til félagsins til að leiða uppbyggingu á styrktar- og þolþjálfun knattspyrnudeildar félagsins ásamt uppbyggingu á gagnagrunni sem mun nýtast félaginu á næstu misserum og bæta starf deildarinnar til muna.

Robin hefur áður starfað hjá Lokeren, NAC Breda, Wisla Krackow og Esbjerg.

„Mikil ánægja er að hafa fengið Robin til félagsins enda reynslumikill þolþjálfari. FH bindur miklar vonir við störf Robin fyrir meistaraflokk félagsins og niður í yngri flokka félagsins sem munu einnig njóta krafta hans," segir í tilkynningu FH.

Við sama tilefni tilkynnti FH að Fjalar Þorgeirsson hefði framlengt samning sinn við félagið en hann mun áfram þjálfa markverði karlaliðsins.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.