Fotbolti.net
09.11.26 - 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Ekki brjálaður sveigur - Skipti mjög miklu máli að halda liðinu í Bestu

FH endaði í 9. sæti.

FH endaði í 9. sæti.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það er hægt að skipta tímabili FH upp í þrjá kafla, liðið byrjaði ansi hægt á Íslandsmótinu og sat á botni Bestu deildarinnar í lok maí. Við tók þriggja mánaða kafli þar sem liðið tapaði einungis tveimur leikjum, tryggði sér sæti í deildinni, en tapaði svo síðustu tveimur leikjunum.

FH náði ekki góðum leik gegn ÍBV í næstsíðustu umferð en FH-ingar létu Þórsara hafa fyrir því í lokaumferðinni þar sem talsvert meira var undir fyrir Þorpara en Hafnfirðinga.

FH fór í miklar breytingar síðasta haust, gerð var umdeild þjálfarabreyting þar sem Jóhannes Karl Guðjónsson tók við liðinu af Heimi Guðjónssyni sem hafði þrjú tímabil endað með liðið í efri hluta deildarinnar. FH-ingar mátu Jóa Kalla rétta manninn í að leiða mun yngra lið.

Fótbolti.net ræddi við Davíð Þór Viðarsson, yfirmann fótboltamála hjá FH, fyrir helgi og var hann spurður út í tímabilið.
Náðu ekki sínu upphaflega markmiði
Gangið þið FH-ingar sáttir frá borði með 9. sætið? Þið náið að breyta genginu eftir hæga byrjun, en náðust markmiðin?

„Við ætluðum okkur að ná í fleiri stig, stefndum á að vera í efri hluta deildarinnar. Það má alveg segja að markmiðið sem við fórum með inn í tímabilið hafi ekki náðst."

„Við vissum að við værum að fara nýja leið, værum að yngja liðið dálítið bratt. Þó svo að við höfum verið óánægðir með byrjunina á mótinu var engin haka í gólf að okkur gengi dálítið erfiðlega."

„Við erum mjög ánægðir með það, úr því sem komið var, að við höfum náð að vinna okkur út úr því. Að lokum náðum við að halda okkur nokkuð þægilega uppi, vorum búnir að klára það þegar ennþá tvær umferðir voru eftir."

„Þetta er svona bæði og, við erum ánægðir að við mótuðum okkur stefnu sem við fylgdum. Við vorum með mjög ungt lið, yngsta meðalaldurinn í deildinni. Það var fullt af strákum á 2. flokks aldri sem fengu sínar fyrstu mínútur, mismargar eftir leikmönnum. Leikmenn sem voru „fringe" leikmenn fengu mun stærra hlutverk í ár heldur en í fyrra, Gils (Gíslason) besta dæmið. Það var margt sem var mjög gott."

„Þetta er sú leið sem við trúum á, ætlum að halda áfram að keyra á þetta. Við ætlum að reyna fylla í þau skörð sem okkur finnst við þurfa að fylla í, og ætlum að keyra á þetta aftur á næsta ári."


Fengu inn öfluga leikmenn
Varðandi stefnuna og það sem þið viljið gera, þið fóruð í að sækja aðeins eldri og reynslumeiri leikmenn í glugganum. Oliver Stefánsson, Jóhannes Kristinn Bjarnason, Erlingur Agnarsson og Guðmundur Andri Tryggvason komu inn og höfðu jákvæð áhrif á liðið.

Var það smá sveigur á ykkar leið eða var það innan ykkar plana?

„Það var kannski ekki endilega planið að við þyrftum að ná í fjóra nýja leikmenn í glugganum. En svo mátum við það þannig að til þess að halda sætinu í deildinni, og þegar möguleikinn bauðst á þessum fjórum leikmönnum, þá ákváðum við að keyra á þá."

„Við vissum að meðalaldur leikmanna liðsins og þetta hafði einhver áhrif á það að leikmaður eins og Róbert Hugi (Sævarsson) fékk færri mínútur en hann hafði fengið. Ef horft er heilstætt á það var það ekkert endilega það versta í stöðunni fyrir hann, honum var hent út í djúpu laugina, stóð sig frábærlega, en það getur tekið á að vera ungur leikmaður í liði sem er að ströggla. Það hentaði honum að mörgu leyti betur að fá mínútur í sterkara liði, þó að það væru færri mínútur."

„Þessir leikmenn sem komu inn, Jói (Jóhannes Kristinn) er 21 árs, Oliver er 24 ára, Elli (Erlingur) er 28 ára og Guðmundur Andri er 27 ára. Þetta eru ekki gamlir leikmenn og fyrir utan Jóa voru þeir meira að taka mínútur af leikmönnum á svipuðum aldri, eða jafnvel eldri."

„Mér fannst við ekki vera að taka brjálaðan sveig út frá okkar stefnu, en áttuðum okkur samt á því að fjárhagslega skipti það mjög miklu máli að vera í efstu deild,"
segir Davíð.

FH tók inn fimmta leikmanninn, Bastian Andersen, en hann kom einungis við sögu í tveimur leikjum.

Sést hver stefnan er og hægt að læra af tímabilinu
Eftir alla þessa velgengni frá því í lok maí, finnst þér skrítið að horfa til þess að þið endið „bara" í 9. sæti?

„Það gekk vel og við töpuðum einungis tveimur leikjum frá 9. umferð og fram að 26. umferð. Við gerðum hins vegar mikið af jafnteflum sem gerðu það að verkum að við komumst ekki ofar en við ætluðum okkur. Við vorum í möguleika fyrir lokaleikina, ef við hefðum unnið þá, þá hefðum við endað í 7. sæti."

„Það er jákvætt að við getum sagt að við lærðum mikið af þessu tímabilið, við bættum okkur og þróuðum liðið okkar. Það er ekkert alls staðar hægt að sjá mikla stefnu, en mér finnst við vera með það. Nú er okkar að byggja ofan á þetta og hægt og rólega að verða betra í öllu því sem við gerum,"
segir Davíð.
Á köflum spilaði FH virkilega skemtilegan fótbolta.

Á köflum spilaði FH virkilega skemtilegan fótbolta.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Davíð Þór Viðarsson er yfirmaður fótboltamála hjá FH.

Davíð Þór Viðarsson er yfirmaður fótboltamála hjá FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gils Gíslason átti gott tímabil.

Gils Gíslason átti gott tímabil.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Róbert Hugi (2010) er mjög spennandi miðjumaður sem erlend félög fylgjast með.

Róbert Hugi (2010) er mjög spennandi miðjumaður sem erlend félög fylgjast með.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Oliver kom virkilega vel inn í lið FH.

Oliver kom virkilega vel inn í lið FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jói Kalli var á sínu fyrsta tímabili með lið FH.

Jói Kalli var á sínu fyrsta tímabili með lið FH.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.