Fotbolti.net
09.12.13 - 14:28
Magnús Már Einarsson

Guðbjörg til Turbine Potsdam (Staðfest)

Guðbjörg til Turbine Potsdam (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Guðbjörg Gunnarsdóttir hefur samið við Turbine Potsdam, eitt besta félag heims. Félagaskiptin munu ganga í gegn um áramótin.

<i>„Ég er búinn að fá tölvupóst þar sem er staðfest að hún sé búinn að semja við Potsdam frá og með 1. janúar,\"</I> segir Arne Utvik, íþróttastjóri Avaldsnes, sem Guðbjörg hefur leikið með en Vísir greinir frá þessu.
Potsdam hefur verið eitt af bestu kvennaliðum Þýskalands og Evrópu undanfarin tíu ár. Liðið hefur unnið þýsku deildina í fjölda skipta á þeim tíma og einnig Meistaradeild kvenna árið 2010.

Margrét Lára Viðarsdóttir fyrirliði íslenska landsliðsins varð þýskur meistari með liðinu árið 2012.

,,Þegar eitt af bestu liðum heims sýnir áhuga þá er ekki hægt að segja nei,\" sagði Guðbjörg við Fótbolta.net í síðustu viku en hún hefur nú samið við þýska félagið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.