09.12.13 - 10:30
Magnús Már Einarsson
Jóhannes Karl í Fram (Staðfest)

Frá undirskriftinni í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Frá undirskriftinni í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhannes Karl Guðjónsson hefur gengið til liðs við Fram en hann kemur til félagsins frá ÍA.
Hinn 33 ára gamli Jóhannes Karl skrifaði undir tveggja ára samning við Fram á fréttamannafundi nú rétt í þessu.

Valur sýndi einnig áhuga á að fá Jóhannes Karl í sínar raðir á dögunum og bæði KR og FH reyndu að fá hann júlí síðastliðnum. Nú er hins vegar ljóst að Jóhannes Karl mun leika með Frömurum næsta sumar.
,,Fram telur gríðarlegan feng í því að fá Jóhannes Karl til liðs við félagið, umfangsmikil reynsla hans og hæfileikar koma til með að nýtast ungum leikmannahópi Fram afar vel í baráttunni framundan. Fram býður Jóhannes Karl velkominn til félagsins og væntir mikils af samstarfinu,\" segir í yfirlýsingu frá Fram.
Bróðir Jóhannesar, Bjarni Guðjónsson, tók við Fram eftir síðasta tímabil og hafa gríðarlegar breytingar orðið á leikmannahópnum. Tólf leikmenn hafa núna samið við Safamýrarfélagið en flestir eru þeir ungir að aldri.
Reynsla Jóhannesar ætti því að nýtast bikarmeisturum Fram vel en hann lék á sínum tíma í fimmtán ár í atvinnumennsku erlendis auk þess sem hann á að baki 34 landsleiki.