09.12.13 - 12:00
Magnús Már Einarsson
Richie Barker og Steve Coppell til Portsmouth (Staðfest)

Steve Coppell.

Mynd: Getty Images

Steve Coppell.

Mynd: Getty Images
Richie Barker hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Portsmouth og Steve Coppell hefur verið ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá félaginu.
Portsmouth er í 17. sæti í ensku D-deildinni en Guy Whittingham var rekinn frá félaginu í lok síðasta mánaðar.
Hermann Hreiðarsson og David James voru meðal annars orðaðir við Portsmouth en Barker fékk starfið á endanum.

Barker og Coppell voru báðir áður hjá Crawley Town í ensku C-deildinni en sá síðarnefndi hefur verið knattspyrnustjóri hjá Crystal Palace, Manchester City, Brentford, Brighton, Reading og Bristol City á ferli sínum.