Fotbolti.net
09.12.15 - 15:48
Magnús Már Einarsson

Garry Monk rekinn frá Swansea (Staðfest)

Garry Monk.

Garry Monk.

Canon

Mynd: Getty Images

Gylfi Þór Sigurðsson er að fá nýjan knattspyrnustjóra hjá Swansea en búið er að reka Garry Monk úr starfi.
„Við vonumst til að ráða eftirmann fljótlega,\" segir í yfirlýsingu frá Swansea í dag.

Swansea hefur einungis unnið einn leik síðan í ágúst en liðið situr í 15. sæti í ensku úrvalsdeildinni.

Monk tók við liðinu í febrúar árið 2014 eftir að hafa áður spilað með Swansea í tíu ár. Undir hans stjórn náði Swansea sínum besta árangri í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.

„Þetta var ekki auðveld ákvörðun, sérstaklega ef við miðum við sögu Garry hjá félaginu. Það þarf varla að taka fram að við óskum Garry alls hins besta í framtíðinni og þökkum honum fyrir frábæra þjónustu sem leikmaður undanfarinn áratug og sem stjóri. Hann mun alltaf vera hjartanlega velkominn hjá félaginu,\" sagði Swansea í yfirlýsingu í dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.