Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 09. desember 2019 22:02
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Arnór Borg og Ísak Snær mættust í U23 deildinni á Englandi
Arnór Borg
Arnór Borg
Mynd: Arnór Borg Guðjohnsen
Þeir Arnór Borg Guðjohnsen og Ísak Snær Þorvaldsson mættust í kvöld í U23 deildinni á Englandi.

Arnór Borg er á mála hjá Swansea og Ísak Snær hjá Norwich, leikurinn var heimaleikur Swansea.

Ísak Snær lék allan leikinn hjá gestunum og fékk gult spjald á 50. mínútu. Arnór Borg kom inn á sem varamaður á 78. mínútu.

Swansea sigraði leikinn, 2-1. Swansea komst yfir á 14. mínútu en Norwich jafnaði á 58. mínútu. Sigurmarkið kom svo á þriðju mínútu uppbótartíma.

Swansea er í 9. sæti deildarinnar með 14 stig og Norwich í 11. sæti með 8 stig, alls 12 lið eru í deildinni.
Athugasemdir
banner