Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 09. desember 2019 21:30
Aksentije Milisic
Carragher: Byrjun Man Utd sú besta sem ég hef séð gegn City undir Guardiola
Mynd: Getty Images
Jamie Carragher, fyrrverandi leikmaður Liverpool og sparkspekingur á Sky Sports, hefur hrósað frammistöðu Manchester United á Etihad leikvangnum í hástert.

Man Utd lagði granna sína í Manchester City 1-2 á útivelli um síðustu helgi.

Jamie Carragher og Rafael Benitez, fóru vel yfir leikinn á Sky Sports í kvöld, fyrir leik West Ham og Arsenal. Jamie Carragher hrósaði Man.Utd sérstaklega fyrir fyrstu 30. mínútur leiksins.

„Ég held að þessi frammistaða hjá United fyrsta hálftímann sé sú besta sem ég hef séð hjá liði sem mætir í leik á Etihad gegn City á þessum þremur árum undir stjórn Pep Guardiola. Þetta var rosalegt. Þetta var Manchester United," sagði Carragher.

„Fullt af fólki tala um fremstu þrjá hjá Liverpool og City. Ég held að fremstu þrír hjá United séu jafn góðir en þeim vantar stöðugleika," bætti Carragher við og átti við um þá Rashford, Martial og James.
Athugasemdir
banner
banner