10.01.13 - 09:32
Magnús Már Einarsson
Bogi Rafn í HK (Staðfest)

Bogi Rafn Einarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

HK hefur fengið varnarmanninn Boga Rafn Einarsson til liðs við sig frá Grindavík. Bogi Rafn, sem er 24 ára, hefur leikið allan sinn feril með Grindavík, að undanskildum hluta úr tímabilinu 2010 þegar hann lék með Njarðvík í 1. deild.
Hann á að baki 43 úrvalsdeildarleiki með Grindvíkingum og hefur skorað eitt mark en hann missti alveg af síðasta tímabili vegna meiðsla. Þá hefur Bogi leikið 7 leiki með U19 og U17 ára landsliðum Íslands.
,,Ég er í skýjunum með að við skulum hafa náð sterkum leikmanni eins og Boga til okkar. Þar með fáum við leikmann með reynslu af því að spila í úrvalsdeildinni og með yngri landsliðunum og hann kemur til með að styrkja lið okkar mjög mikið,\" sagði Gunnlaugur Jónsson þjálfari meistaraflokks við HK-vefinn.
Þá hafa HK-ingar einnig samið við Alexander Lúðvígsson sem og Eyþór Örn Þorvaldsson í 2. flokki. Alexander kom til HK í júlí í fyrra eftir að hafa leikið með KH framan af sumri.
,,Alexander er sá leikmaður sem hefur komið einna mest á óvart í vetur. Hann getur spilað allar stöðurnar í vörninni, er kraftmikill og með mikinn metnað. Nú er komin góð mynd á liðið og mikil samkeppni um stöður, eins og þetta á að vera,\" sagði Gunnlaugur.
Á vef HK kemur einnig fram að Beitir Ólafsson markvörður liðsins er á leið í aðgerð og verður því ekkert með í B-deild Fótbolta.net mótsins sem hefst eftir viku.

Heimild: Heimasíða HK