Fotbolti.net
10.01.13 - 22:16
Elvar Geir Magnússon

Guðmundur Óli heim í Völsung (Staðfest)

Viðtal við hann í myndbandi hér að neðan

Guðmundur Óli heim í Völsung (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Guðmundur Óli Bergmann Steingrímsson er kominn aftur heim og genginn til liðs við sitt uppeldisfélag Völsung frá KA þar sem hann hefur verið síðustu fimm tímabil utan við smá heimkomu 2008.
Hann skrifaði undir samning í dag sem gildir til loka ársins 2015 og óhætt að segja að þetta séu gleðitíðindi fyrir Völsunga.

Guðmundur Óli þekkir vel til hjá Völsungi enda fyrrum fyrirliði liðsins en hann á að baki 72 leiki fyrir Völsung og hefur skorað í þeim 16 mörk.

Fyrsti leikur hans fyrir meistaraflokk var árið 2003 er hann kom inn á fyrir Björgvin Sigurðsson, söngvara og gítarleikara Skálmaldar, í 3-2 sigri gegn Fjölni í 2.deild karla en það ár sigraði liðið deildina.

Völsungur leikur í 1. deild næsta sumar eftir að hafa unnið 2. deildina með glæsibrag síðasta tímabil.



Heimild: Græni herinn

Heimild: Græni herinn

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.