Fotbolti.net
10.01.13 - 14:33
Magnús Már Einarsson

Stefán Ragnar í Val (Staðfest)

Stefán Ragnar í Val (Staðfest)
Canon

Mynd: Valur

Stefán Ragnar Guðlaugsson skrifaði í dag undir samning við Valsmenn en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu.

Þó er ekki endanlega ljóst hvort Stefán muni leika með Val í sumar því eins og fram kom á Fótbolta.net í gær er hann á leið til norska félagsins Hönefoss á reynslu næstkomandi mánudag.

Stefán Ragnar mun æfa með Hönefoss í tvær vikur en ef hann semur ekki við félagið mun hann leika með Valsmönnum í sumar.

Ef Stefán semur við Hönefoss verður hann þriðji íslenski varnarmaðurinn í herbúðum félagsins en fyrir eru þeir Kristján Örn Sigurðsson og Arnór Sveinn Aðalsteinsson.
Samningur Stefáns við Selfyssinga rann út um áramót og hann kemur því frítt til Vals.

Stefán Ragnar er 21 árs gamall en hann hefur verið lykilmaður hjá Selfyssingum undanfarin ár. Í sumar var hann síðan fyrirliði liðsins í Pepsi-deildinni.

Heimild: Heimasíða Vals

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.