10.01.14 - 16:33
Magnús Már Einarsson
Arnar Darri í Víking Ólafsvík (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Víkingur Ólafsvík hefur fengið markvörðinn Arnar Darra Pétursson á láni frá Stjörnunni.
Arnar Darri á að fylla skarð Einars Hjörleifssonar sem lagði hanskana á hilluna á dögunum.

Arnar Darri er 22 ára gamall en hann var á mála hjá Lyn í Noregi og SønderjyskE í Danmörku áður en hann gekk aftur til liðs við uppeldisfélag sitt Stjörnuna vorið 2012.
Sumarið 2012 spilaði hann alla leiki Stjörnunnar í Borgunarbikarnum þar sem liðið tapaði í úrslitum gegn KR. Í sumar spilaði hann síðan fimm leiki í deild og bikar.
Arnar Darri á einnig að baki leiki með öllum yngri landsliðum Íslands og þar af sjö leiki með U21 árs landsliðinu.
Hann mun að öllum líkindum spila sinn fyrsta leik með Ólafsvíkingum næstkomandi föstudag þegar Víkingar mæta Tindastólsmönnum í Fótbolta.net mótinu.

Heimild: Heimasíða Víkings Ó.