Fotbolti.net
10.01.14 - 12:56
Jóhann Óli Eiðsson

Fanndís Friðriksdóttir í Arna-Björnar (Staðfest)

Fanndís Friðriksdóttir í Arna-Björnar (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Landsliðskonan Fanndís Friðriksdóttir hefur fært sig um set í Noregi en hún er gengin úr röðum Kolbotn til Arna-Björnar. Fanndís gekk til liðs við Kolbotn fyrir tímabilið 2013.
Kolbotn bauð Fanndísi að vera áfram en tilboðið frá Arna-Björnar var betra samkvæmt Höge Jörgensen, íþróttastýru Kolbotn.

„Hún fékk tilboð frá okkur en hún vildi samning sem gerði henni kleyft að lifa af knattspyrnunni og það var meira en við réðum við,“ sagði Jörgensen. „Þetta kom okkur nokkuð á óvart og við erum að vinna í málunum.“

Fanndís lék alla 22 leiki Kolbotn í deildinni í fyrra og varð markahæst í liðinu með sjö mörk er liðið endaði í sjötta sæti. Arna-Björnar endaði í þriðja sæti á eftir Lilleström og Stabæk.

Með Arna-Björnar leikur einnig landsliðskonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir en hún var frá stærstan hluta síðasta árs sökum meiðsla.

Heimild: oblad.no

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.