10.01.14 - 13:21
Magnús Már Einarsson
Hjörtur Hjartarson í ÍA (Staðfest)

Gunnlaugur Jónsson þjálfari ÍA og Hjörtur Júlíus Hjartarson.

Mynd: ÍA

Hjörtur fór upp með ÍA árið 2011.

Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir

Markaskorarinn reyndi Hjörtur Júlíus Hjartarson hefur gengið til liðs við uppeldisfélag sitt ÍA á nýjan leik.
Hjörtur, verður fertugur í haust, en hann lék síðast með Skagamönnum sumarið 2011 þegar hann hjálpaði liðinu að komast upp úr 1. deildinni.
Hjörtur er 6. markahæsti og tíundi leikjahæsti leikmaður í sögu Íslandsmótsins, með 166 mörk í 332 leikjum.
Síðastliðin tvö tímabil hefur Hjörtur leikið með Víkingi Reykjavík en hann hjálpaði liðinu að komast upp í Pepsi-deildina síðastliðið haust.
Eftir tímabilið lýsti hann því yfir að hann myndi ekki vera áfram í herbúðum Víkings og nú hefur hann samið við sitt gamla félag ÍA.

,,Ég er mjög ánægður með að þetta skuli ganga upp. Hann kemur kannski til með að vera í aðeins öðruvísi hlutverki en hann er vanur. Hann er fenginn til að styðja við þá tvo sentera sem við erum með, Garðar Gunnlaugsson og Eggert Kára Karlsson. Þar sem það er enginn þriðji senter til staðar ákváðum við að fá Hjört til að vera til taks,\" sagði Gunnlaugur Jónsson þjálfari ÍA við Fótbolta.net í dag.
,,Hann verður á tánum ef hinir standa sig ekki og ef það eru meiðsli hjá þeim. Síðan er kannski mikilvægast að hann kemur með gríðarlega reynslu og mikilvægt hugarfar inn í hópinn. Ég tel að það sé mjög mikilvægt og gott að fá þennan reynlsubolta sem hefur gert allt sem hægt er að gera á Íslandi.\"
,,Hann er gífurlegur sigurvegari og síðast á síðasta ári fór hann upp með Víkingi auk þess sem hann var í stóru hlutverki þegar ÍA fór upp árið 2011. Hann á eftir að nýtast okkur vel.\"
Gunnlaugur og Hjörtur þekkjast afar vel en þeir léku í mörg ár saman með Skagamönnum á sínum tíma.
,,Við erum jafnaldrar og ólumst upp saman í yngri flokkunum. Við spiluðum saman í meistaraflokki ÍA frá árinu 2000 og síðan tók ég hann á Selfoss þegar við fórum upp 2009 og þar var hann gulls ígildi. Þetta er mjög mikill fengur fyrir okkur,\" sagði Gunnlaugur.