Fotbolti.net
10.01.14 - 10:56
Jóhann Óli Eiðsson
Ítalska deildin

Michael Bradley til Toronto (Staðfest)

Michael Bradley til Toronto (Staðfest)
Canon

Mynd: Twitter síða Real Madrid

Toronto FC fer mikinn á leikmannamarkaðnum í dag en liðið hefur nælt í tvo leikmenn. Búið er að staðfesta Jermain Defoe og nú hefur verið staðfest að Michael Bradley fari einnig til liðsins frá Roma.
Kaupverðið er tæpar sjö milljónir punda. Hinn 26 ára gamli Bandaríski miðjumaður snýr nú aftur í MLS deildina eftir sjö ára Evróputúr en hann hefur leikið með með Heerenveen, Monchengladbach, Aston Villa, Chievo og Roma.

„Það er synd að Bradley sé að fara en hann vildi fara og við getum ekki haft leikmann sem vill ekki vera hér,“ sagði Rudi Garcia hjá Roma.

„Það er leiðinlegt en hann vildi spila meira og það er erfitt að fá pláss á miðjunni hjá okkur. Við óskum honum alls hins besta í framtíðinni.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.