10.01.14 - 18:37
Elvar Geir Magnússon
Sveinbjörn Jónasson í Víking (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Knattspyrnudeild Víkings Reykjavík hefur samið við sóknarmanninn Sveinbjörn Jónasson um að leika með félaginu næsta sumar.
Sveinbjörn sem er 27 ára gamall kemur til Víkings frá Þrótti þar sem hann lék síðastliðið ár. Áður hefur hann leikið fyrir Fram, Grindavík, Fjarðabyggð og Huginn
Sveinbjörn vakti mikla athygli sumarið 2011 þegar hann skoraði 19 mörk í 22 leikjum í 1. deildinni fyrir Þrótt en alls hefur hann skorað 90 mörk í 208 leikjum í deild og bikar fyrir áðurnefnd lið.
Sveinbjörn Jónasson er þriðji leikmaðurinn sem semur við Víking fyrir komandi tímabil en áður hafði félagið samið við Alan Lowing (Fram) og Ómar Friðriksson (KA).
„Knattspyrnudeild Víkings býður Sveinbjörn hjartanlega velkominn í félagið,\" segir á Víkingur.net en liðið vann sér inn sæti í Pepsi-deildinni á síðasta tímabili undir stjórn Ólafs Þórðarsonar.

Heimild: Víkingur.net