Fotbolti.net
10.01.16 - 13:48
Magnús Már Einarsson

Anna Björk til Örebro (Staðfest)

Anna Björk Kristjánsdóttir.

Anna Björk Kristjánsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Anna Björk Kristjánsdóttir, landsliðskona, hefur yfirgefið Stjörnuna og gengið til liðs við Örebro í sænsku úrvalsdeildinni.

Anna Björk, sem er 26 ára varnarmaður, gerði samning við Örebro sem gildir út nóvember á þessu ári.
„Ég tel þetta vera mikilvægt skref upp á við fyrir mig. Það að fara í betri deild og flottar aðstæður, þar sem ég get einbeitt mér algjörlega að fótboltanum, er eitthvað sem hefur verið markmið mitt í einhver ár,\" sagði Anna Björk við Fótbolta.net í dag.

„Ég er gríðarlega spennt fyrir þessu skrefi og hlakka til að takast á við nýjar áskoranir. Mér líst gríðarlega vel á félagið. Ég hringdi í Eddu (Garðarsdóttur, fyrrum leikmann Örebro) og spurði hana betur út í liðið og borgina og hún talaði mjög vel um allt þarna. Sagði að umgjörðin væri til fyrirmyndar og borgin mjög þægileg. Engin stórborg en það væri allt til staðar. Hún kveikti enn meiri áhuga hjá mér og ég vissi þá að ég væri að fara út í gott umhverfi sem ég tel gríðarlega mikilvægt.\"

„Ég heyrði aðeins í þjálfaranum um daginn. Hann er nýr þjálfari, grískur. Fyrir mér hljómaði hann metnaðarfullur og leist vel á hvernig hann hugsar.\"

Örebro endaði í fimmta sæti í sænsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili en félagið hefur fengið góðan liðsstyrk að undanförnu. Kanadíski framherjinn Melissa Tancredi samdi við félagið á dögunum og mexíkóska landsliðskonan Veronica Perez frá Mexíkó samdi einnig við félagið í vikunni en hún lék með Önnu hjá Stjörnunni sumarið 2005.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.