10.01.16 - 10:00
Magnús Már Einarsson
Sigurður Hrannar í Fram á láni (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram hefur fengið markvörðinn Sigurð Hrannar Björnsson á láni frá Víkingi R.
Sigurður Hrannar lék með Fram í yngri flokkunum en hann á engan mótsleik að baki fyrir félagið í meistaraflokki.
Sigurður Hrannar fór frá Fram til Tindastóls á láni árið 2013 en sumarið 2014 var hann varamarkvörður hjá Víkingi R. í Pepsi-deildinni.
Hinn 22 ára gamli Sigurður Hrannar var á láni hjá Hetti í 2. deildinni síðastliðið sumar en hann var valinn bestur á lokahófi félagsins í haust.
Hinn bandaríski Cody Nobles Mizell varði mark Fram lengst af síðastliðið sumar en Sigurður Hrannar mun nú berjast við Bjarka Pétursson um markvarðarstöðuna hjá liðinu.
Sigurður og Bjarki hafa staðið á milili stanganna hjá Fram í æfingaleikjum í vetur.